Erlu-blogg

Sælt veri fólkið !!

17.01.2007 11:07:07 / erlafreys

Í fréttum er þetta helst....

Hvað er að frétta af mér????
Það er góð spurning.

Voða lítið, enda lítið sem gerist hér á þessu skeri.

Ég er komin á fullt á ræktina aftur. Reyni að mæta sem flesta morgna kl.06:00, með Dísu sys. , Lenu og Gunna, og svo er ég líka hjá einkaþjálfanum þrisvar í viku kl.18:00. Pálmi er ekki með mér í bili...
....þ.e. í ræktinni:$ en Dísa systir hljóp i skarðið á meðan.

Við ræktar hrossin ásamt fleirrum störtuðum hvatningar hópi í gær.....erum átta saman....og erum að keppaum besta árangurinn í ræktinni og undir liggja hvorki meira né minna en átta léttvíns flöskur....það er rétti íþróttaandinn í þessu ;)

En þetta er nú ekki allt. Ég ákvað að drekkja mér aðeins í félagslífinu og er byrjuð í Karate með Þórunni vinkonu....það er æðislegt.....erfitt!!!!! en æðislegt.:P

Svo dreif ég mig í smá "inntökupróf" fyrir kirkjukórinn í gær og viti menn....ég er kominn í kirkjukór Fella- og Hólakirkju.....og er sópran :haha: Bara gaman af því og fer á fyrstu æfingu í kvöld.

Þannig að það er ekkert spes að frétta nema bara ég er nokkuð bissí með sjálfri mér.

Mánudagar: Vakna kl.05:35, ræktin kl.06:00-07:15, vinna 07:30-16:30, ræktin

17:45-19:00, karate 19:15-20:30.

þriðjud.: vakna 05:35, ræktin 06:00-07:15, vinna07:30-16:30, ræktin 17:45-19:00,

miðvikud.: vakna 05:35, ræktin 06:00-07:15, vinna07:30-16:30, kóræfing 19:30-22:00

Fimmtud.: vakna 05:35, ræktin 06:00-07:15, vinna07:30-16:30, ræktin 17:45-19:00,

föstud.: vakna 05:35, ræktin 06:00-07:15, vinna07:30-16:30,karate 19:15-20:30....komið frí!!!helgar frí 8|;)

Allur annar laus tími verður vel skipulagður með fjölskyldunni.

Þetta er allavega til reynslu næstu tvo mánuði og hefur Pálmi samþykkt að verða húsmóðir og faðir á meðan.
Maður getur ekki kvartað undan því að vera ekki vel giftur:lol:

Spurning um að láta þetta duga í bili en hugsanlegt að ég fari að hrita niður nokkrar línur hér af og til.  


.............tjá.......


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 23:23:18 / erlafreys

HAHAHAHAHAHAHAHA

Brúnka, rauðka og ljóska vinna saman á skrifstofu. Þær taka eftir því að á hverjum degi fer fröken Sigríður yfirmaður þeirra aðeins of snemma heim úr vinnunni.

Einn daginn spjalla þær saman og sjá sér leik á borði að stelast fyrr úr vinnunni með því að fara stuttu á eftir fröken Sigríði.
Næsta dag þegar yfirmaðurinn fer læðast þær út stuttu síðar.

Brúnkan fer heim til sín og beint í rúmið, ákveðin í því að vakna snemma næsta morgunn og nýta tímann vel. Rauðkan notar aukatímann með því að fara á
líkamsræktarstöð áður en hún fer út að borða með vini sínum. Ljóskan fer heim, gengur inn í svefnherbergið og sér eiginmann sinn í rúminu með fröken Sigríði, yfirmanni sínum. Hún lokar hurðinni og fer út.

 
Næsta dag ræða brúnkan og rauðkan um það að nota sömu aðferð og daginn áður. Þær spyrja ljóskuna hvort hana langi til að fara aftur snemma
heim. 

"Nei" segir ljóskan. "Það komst næstum því upp um mig í gær!"

:haha::haha::haha::haha::haha::haha::haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 15:08:05 / erlafreys

Þá er að standa sig

Góðan og blessaðan.......

Jæja undur og stórmerki áttu sér stað í morgun. Þunglynda dagmóðirinn í breiðholtinu var komin á fætur 05:45
og komin niðrí Veggsport 06:03. Tók 45 mín. brennslu og magaæfingar. Er frekar stolt sko.8)

Ég fór í heimsókn til Ósk systir í gær....hún var að gera hendurnar á mér fínar. Og það ekkert smá....setti gel
ofná mínar neglur, og tókst það bara þrusu vel. Ég er mjög ánægð....og það er sko ekkert auðvelt að gera mig
ánægða í þessum efnum....er MJÖG pikkí hvað neglur varnar!!...og margt annað svo sem :|
Hún er sem sagt orðin voða klár að setja gerfineglur og bíður uppá þá þjónustu heima fyrir 3500 - 4000kr.

En núna styttist í jólin og ennþá meira í að Dísa systir komi heim frá USA. Það verður gott að fá hana heim
aftur.
Annars er ég aðeins farina að huga að jólunum....er byrjuð að þrífa gluggana svo að ég geti sett seríurnar upp
um næstu helgi. Svo veður spáin er hagstæð í þeta skiptið...með hlýnandi veður...þá er hægt að þrífa gluggana
að utan líka.

Held að það sé betra að byrja rólega í blogginu aftur...svo ég læt þetta duga í bili.

Verð að segja að ég er mjög ánægð með útkomuna úr könnuninni minni þar sem ég fékk 100% í engin spurning
um að ég ætti að byrja að blogga aftur. Það er nú forvitnilegt að vita hver það er sem er svona æstur í
að lesa skrif mín :)

                         ........yfir og undir......


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 01:40:45 / erlafreys

Börn eru besta fólk!!

Þegar maður verður skotin í ástfanginn, þá er það rosalega sárt og maður getur meitt sig alveg fullt."
-Magnús 7. ára.

"Ég veit ekki alveg hvers vegna það eru svona margir ástfangnir,
en ég held það sé vegna þess að konur eru með ilmvatn og karlar rakspíra
og það er þá líklega vegna þess að þau ilma svo vel. Þess vegna seljast ilmvötn svo mikið.
Mamma kaupir alltaf fullt þegar hún fer til útlanda og oftast fyrir pabba."
-Siggi 8. ára.

"Ég hef heyrt að ástin og að verða ástfanginn sé það mikilvægasta í heiminum,
en það er líka mikilvægt að Manchester United gangi vel!"
-Friðrik 8. ára.


"Strax á eftir þegar ég er búinn í leikskólanum ætla ég að finna mér konu."
-Tómas 5 ára.

"Mér finnst voða gaman að horfa á ástina, bara ekki á meðan Birta
og Bárður eru. Ég vil frekar horfa á þau."
-Helga 7. ára.

"Fyrst þegar kærustupar ferð út saman þá skrökva
þau alveg fullt að hvort örðu, en samt fara þau út aftur...og verða kannski hjón?"
-Finnur 10. ára.


"Ég er með svolítið margar freknur, svo að konan mín
verður að hafa freknur líka."
-Andri 6. ára.

"mamma sagði að ég ætti að velja mér mann sem væri
blaður og myndarlegur."
-Katrín 8. ára.

"Æ, hættu að spyrja mig að þessu með ástina, ég fæ hausverk...
ég bara krakki og ég þarf enga ástina."
-Ragnar 7 ára.


"Ég ætla sko ekkert að flýta mér að verða ástfanginn.
Það er alveg nógu erfitt að vera í skólanum."
-Regína 10.ára.


"Mamma segir að karlmenn séu heilalausir. Hún er búin að
reyna að finna marga sem eru með heila en það gengur illa."
-Agnes 10. ára.


"Maður og kona lofa að fara í gegnum allt saman, líka Hvalfjarðagöngin."
-Ómar  7. ára.

"Ég ætla sko ekki að eignast börn! Eða jú kannski? En ekki að skipta um
bleyjur! Ég myndi bara hringja í mömmu og bjóða henni í kaffi til að fá hana til að skipta um bleyjur."
-Kristín 10. ára

"Ástin er mjög asnaleg...en ég held ég verði
samt að prófa hana?"
-Sigrún 9. ára.


"Ástin finnur mann sko alltaf... jafnvel þótt þú reynir
að fela þig. Ég hef reynt að fela mig oft, oft, en alltaf finna stelpurnar mig og verða skotnar í mér."
-Davíð 8. ára.


Magapínukveðjur :frown:

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 12:38:16 / erlafreys

Með þeim fyndnari !!

Stelpa býður kærasta sínum um að koma heim til sín á föstudagskveldi og borða með foreldrum sínum. Þar sem þetta er nokkuð stór viðburður, þá tilkynnti stelpan kærastanum sínum að eftir matinn myndi hún vilja fara út og hafa samfarir í fyrsta sinn.

Jæja, strákurinn er himinlifandi, en hann hafði aldrei áður haft samfarir, svo hann gerir sér ferð til lyfjafræðings til að ná sér í nokkra smokka.
Hann segir lyfjafræðingnum að þetta sé hans fyrsta skipti og lyfjafræðingurinn tekur sér klukkutíma í að fræða strákinn um allt sem hann veit um smokka og samfarir.

Þegar kemur að því að panta, spyr lyfjafræðingurinn strákinn að því hversu marga smokka hann vilji kaupa: 3 í pakka, 10 í pakka eða fjölskyldupakka.
Strákurinn vildi gjarnan kaupa fjölskyldupakka, því hann taldi að hann yrði frekar upptekinn, þetta væri fyrsta skiptið hans, o.s.frv.

Um kvöldið mætir strákurinn heima hjá foreldrum stelpunnar og kærastan tekur á móti honum. ,,Vá, ég er svo spennt fyrir því að þú hittir foreldra mína, komdu inn!".

Strákurinn gengur inn og er vísað til borðs þar sem foreldrar stelpunnar eru sest niður. Strákurinn býðst skyndilega til að fara með borðbæn og hneigir höfuðið.
Mínútu seinna er strákurinn enn við bæn með höfuðið hneigt niður.

10 mínútur líða og ennþá örlar ekki á hreyfingu frá stráknum.
Eftir 20 mínútur hallar stelpan sér að kærastanum sínum, sem enn virtist í djúpri bæn, og hvíslar að honum ,,Ekki vissi ég að þú værir svona trúaður!"

Strákurinn snýr sér við og hvíslar til baka: , Ekki vissi ég að pabbi þinn væri lyfjafræðingur!!!"



» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 00:07:20 / erlafreys

Hvað er á seiði...mín bara á lífi :o)

1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Hlakka til að sjá hvort það er einhver þarna úti að reyna að fylgjast með mér ennþá :o)

Endilega svaraðu líka könnuninni!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.08.2006 13:21:22 / erlafreys

Á dagskrá !!

Öðruvísi dekurkvennaferð á Ólafsfirði helgina 20 – 22.október 2006

Óskastundir bjóða upp á dekurpakkaferð til Ólafsfjarðar fyrir konur til að endurnæra bæði líkama og sál. Farið verður frá Reykjavíkurflugvelli föstudaginn 20. október klukkan 17.15 til akureyrar, við munum svo taka rútu þaðan yfir til Ólafsfjarðar og mun fjörið byrja um leið og við komum þangað. Við höldum svo heim á leið frá Akureyri sunnudaginn 22. október klukkan 15.15

Verð í 2ja manna herbergi á Hótel Brimnesi 48.900 kr. á konu.
Verð í 1 manns herbergi 54.900 kr
.
Innifalið í verði er flug til og frá Akureyri, rúta til og frá Ólafsfirði, gisting á hótelinu, fullt fæði allan tímann ásamt 2 drykkjum AÐRIR DRYKKIR ERU EKKI INNIFALDIR Í VERÐINU, einnig verða ávaxtakörfur á öllum herbergjum og gjafakarfa fyrir hvern þátttakanda. Innifalið er einnig transfundur fyrir hópinn, klst. langur jógatími, klst. löng sundleikfimi ásamt einhverju tvennu af eftirtöldu að eigin vali:
 
A) Svæðanudd
B) Reiki
C) Höfuð-, beina og spjaldhryggsmeðferð
D) Bollaspá
E) Borða og steinaspá
F) Einkamiðilsfundur
G) Litun og plokkun
H) Handsnyrting
I) Klipping
J) Ilmolíunudd (heilnudd)

Einnig verður hægt að bæta við tímum en hver umfram tími sem tekinn kostar 3.000,- krónur.
Við bjóðum einnig uppá verð án fargjalds og gistingar ef einhverjar myndu vilja koma á eigin bílum eða hafa aðgang að gistingu á svæðinu. Allar nánari upplýsingar og pantanir eru á www.oskastundir.is, oskastundir@oskastundir.is eða í síma 840-0234

ATH!! TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI Í BOÐI.

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 13:11:21 / erlafreys

Forvitnilegt !!

Hæ hæ allir saman. Þá fer að líða að því að ég skelli einhverju hérna inn!! En þangað til endilega kíkið nýju síðuna oskastundir.is

Það er allt að gerast!!!!!;)

Kveðja frá þessari sem hefur aldrei tíma í að blogga....


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.04.2006 13:06:19 / erlafreys

Prófaðu

Þetta getur myndað drepfyndna setningu.......prófaðu!!!

Ég fékk: ÉG HORFÐI Á SVÍN AF ÞVÍ AÐ HJARTA MITT ER 2 NO. OF LÍTIÐ.  ekkert það fyndnasta sem sko....en prófað þú.

Veldu mánuðinn sem þú fæddist...

Janúar - ég drap

Febrúar - ég sló

Mars - ég svaf hjá

Apríl - ég horfði á

Maí - ég fróaði mér með

Júní - ég slefaði á

Júlí - ég hló að

Ágúst - ég stakk

September - ég skaut

Október - ég naut ásta með

Nóvember - ég handtók

Desember - ég kúkaði á

Veldu svo afmælisdaginn þinn( spennan magnast....)

1. Hóru

2. Kærasta/una þína

3. Konu með HIV

4. Kynæsandi dverg

5. Jólasvein

6. Playboykanínu

7. Giftri móður

8. Kennara

9. Mömmu þína

10. Páskahérann

11. Köttinn

12. Djöflinum

13. Asískum skiptinema

14. Jónsa í Svörtum fötum

15. Stein

16. DVD spilara

17. Klámstjörnu

18. Síma

19. Tölvu

20. Húsið þitt

21. Svín

22. Lampa

23. Kúk

24. Davíð Oddson

25. 50 Cent

26. Kynskipting

27. Yddara

28. Skólaumsókn

29. Birgittu Haukdal

30. Tappatogara

31. Prentara

Veldu svo ÞRIÐJA stafinn í FÖÐURNAFNINU þínu...(þetta er alveg að koma)

A - Af því að ég elska súkkulaði

B - Af því að mér leiddist

C - Af því að buxurnar mínar voru of þröngar

D - Af því að ég þarf alltaf að prumpa

E - Af því að hjartað mitt er tveimur nr. of lítið

F - Af því að ég fékk engar gjafir um jólin

G - Af því að mér finnst egg góð

H - Af því að ég er á sýru

I - Af því að ég missteig mig

J - Af því að ég er með vörtu

K - Af því að ég elska táknmálsfréttir

L - Af því að ég var skökk/skakkur

M - Af því að ég var full/ur

N - Af því að mamma sagði mér að gera það

O - Af því að ég er hýr

P - Því ég er einmanna

Q - Því mamma og pabbi eru alltaf að rífast

R - Af því að ég er gröð/graður

S - Því mig langar að deyja

T - Því ég hata skóla

U - Af því að ég elska náttafatapartý

V - Af Því að ég þarf að prófa mér

W - Af því að það róar mig

X - Af því að ég elska marmelaði

Y - Af því ég elska prump


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 15:56:30 / erlafreys

Afmæli og fleirra

Já halló og góðan daginn allir saman!!

Nú er maður orðin gamall og krumpaður allt í einu. Ég var búin að bíða eftir þessum
áfanga í fimmtán ár.....og nú er þetta bara búið!

Það var auðvita haldið uppá stórviðburðinn, og fólki boðið í teiti að sjálfsögðu. Og
ekki get ég sagt að ég hafi verið óánægð með útkomuna. Ég skemmti mér frábærlega og það gerðu gestir mínir líka....eða allavega eru þeir svo kurteisir að segja ekki annaðen það :lol:
Helga Braga kom og var með rosalega skemmtilegt uppistand...vá hvað hún er endalaust fyndin....klikkar aldrei!! Svo kom Rosanna (íslandsmeistari í magadansi) og dansaði fyrir okkur.....og ekki klikkaði hún heldur....hún er rosalega klár og flottur dansari.:)
Nóg var af veitingum þó það hafi verið miri afgangar af áfenginu en mat.

En ég semsagt fór í ríkið viku fyrir afmælið og verslaði inn. Sem er kannski ekki frá sögu færandi nema hvað ég skammaðist mín svolítið fyrir magnið sem var verslað. Og þegar afgreiðslumaðurinn sagði töluna 41 þús.og bla bla...þá þurfti ég að hafa mig alla við að missa ekki kúlið sko.....og var fljót að svara þegar hann spurði "viltu fá nótu?"
Svarið var: HA já auðvitað....já takk það er víst betra!:S
UUUUUU til hvers Erla.....á að setja þetta í bókhaldið....í dagmömmurekstrinum????

En veislan gekk vel enda valla annað hægt þar sem ég á svo góða að sem hjálpuðu bæði í undirbúning og í veislunni sjálfri. Takk fyrir alla hjálpina!!!!
Fólk var að missa sig gjörsamlega í gjöfunum....takk kærlega fyrir mig!!!!!

En eins og ég var búin að bíða eftir þessum degi í mörg ár með mikilli tilhlökkun þá vaknaði ég daginn eftir og áttaði mig á að nú væri hann liðin og ég EKKERT búin að breytast neitt!!
Ekkert breytt og ég hugsaði nákvæmlega eins...en það er ágætt ég get þá hlakkað til næsta stóra afmæli og það eru bara tíu ár í það....þá hlýtur eitthvað að gerast og ég verð FULLORÐIN :D Mar heldur uppá það

Að öðrum málum. Þá er lítið að gerast í þyngdar tapinu. Ég virðist ennþá vera í jólafríi og eitthvað virðist það vera erfitt að ljúka því :o/ En ég er ekkert hætt sko nei nei allskostar ekki! Og ég er ennþá í magadansinum og ætla að halda þar áfram.
Annars er líka fullt annað að gerast hjá mér núna sem er rosalega spennandi en það er ekki tímabært að segja frá því strax.....en vonandi fljótlega. Hlakka til að segja ykkur frá því.

Á laugardaginn gæti ég byrjað daginn á að finna góðan stað fyrir málverkið mitt og hengt hana upp farið svo í ræktinni í flottum íþróttafötum, farið svo í einkakennsluí magadans hjá Rosönnu, í nýja töskunni væri ég svo með gjafabréfin í kringlunni þar sem ég kæmi við og keypti mér einhver fín föt, brunað svo í dekur í baðhúsinu þá farið heim haft fataskipti og svo boðið karlinum með mér á leiksýningu í borgarleikhúsinu. Eftir það væri ekki ónýtt að koma heim og skella súkkulaði í fondu-skálina og jarðaber í aðra, kveikja á fína lampanum í stofunni og opna svo eina rauða og eina hvíta til að sötra á og láta sig dreyma um hvað sé best að gera við alla
peningana sem ég fékk í afmælisgjöf og jafnvel spurt englanna nokkrar spurningar fyrir svefninn.;)
Það væri jafnvel spurning um að stinga kannski í eina vél og svo þurkarann einhverstaðar inná milli.:haha:

Þessi dagur væri nátturlega ekki mögulegur nema fyrir það hvað þið eruð yndisleg að gefa mér svona æðislegar afmælisgjafir !!! TAKK AFTUR FYRIR MIG ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 15:21:20 / erlafreys

Ömurlegt

ÚFFFF!!!! Í gærmorgun vaknaði ég með kvef dauðans....hélt að ég væri að drepast. En maður verður að lifa við það á þessu skeri. Fór svo með stelpurnar á páskabingó í eftirmiðdaginn og vá þar tók ég ranga ákvörðun....þ.e. að fara út. Þvílíkur kuldi!!! Þegar ég kom heim var ég orðin lasin. Núna ligg ég uppí rúmi og get ekki staðið uppúr því....ég er búin að gera tvær góðar tilraunir og ááá þvílíkur sársauki...er að drepast í fótunum og allt hringsníst. Svo það er best að halda kyrru fyrir í bælinu. Mældi mig áðan (með ennismæli) og er með rúmlega 38 stiga hita. Jafnvel þetta að blogga tekur á....svo ég bið bara að heilsa. AAAAAAATTTTTSSSSSHHHHJJJÚÚÚÚÚ!!!!!!!!

» 5 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 13:35:07 / erlafreys

HAha

There was this couple that had been married for 20 years. Every time they
made love the husband always insisted on shutting off the light.
Well,after 20 years the wife felt this was ridiculous.  She figured she
would break him out of this crazy habit. So one night, while  they were in
the middle of a wild, screaming, romantic session, she turned  on the
lights.  She looked down... and saw her husband was holding a
battery-operated leisure device... a vibrator! Soft, wonderful and larger
than a real one. She went completely ballistic. "You impotent bastard," She
screamed at  him, "how could you be lying to me all of these years? You
better explain  yourself!" The husband looks her straight in the eyes and
says calmly:  "I'll explain the toy . . . you explain the kids."


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 14:49:48 / erlafreys

mmmúúúúhhhhaaaaaa

                                                                                                                       
[]

A tour bus driver is driving with a bus load of seniors down a highway when he is tapped on his shoulder by a little old lady.

She offers him a handful of peanuts,  which he gratefully munches up.

After about 15 minutes, she taps him on his shoulder again and she hands him another handful of peanuts.  

She repeats this gesture about five more times.

When she is about to hand him another batch again he asks the little old lady, "Why don't you eat the peanuts yourselves?".

"We can't chew them because we have no teeth", she replied.

The puzzled driver asks, "Why do you buy them then?"

The old lady replied, "We just love the chocolate around them."

It pays to be careful around old people.


[]

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 16:20:05 / erlafreys

Bregðumst þeim ekki !!

Hæ ég sá þetta á blogginu hennar Lilju vinkonu....hún sá þetta einhverstaðar annastaðar:)  Endilega lesið þetta og ef þið eigið eitthvað aflögu endilega bregðist við....ég ætla að minnsta kosti að skoða það mál og fara með eitthvað....hugsanlega mest föt en maður finnur líka örugglega eitthvað meira en það ;)


Kæru vinir og félagar, þannig er að það er að fara skip á vegum fjölskyldu minnar til Namibíu eftir ca. viku. Þar er mikil fátækt og atvinnuleysi. Kristján sonur minn er búinn að vera þar í tæpt ár núna, vinnur ásamt pabba sínum og bróður við útgerð.

 

Þeir feðgar eru að sigla skipi þangað um helgina, eins og áður sagði. Eftir að hafa gengið um þetta stóra skip galtómt, datt mér í hug hvort við hérna heima gætum ekki nýtt þetta tækifæri og sent eitthvað með þessu skipi.

 

Að höfðu samráði við feðgana, þá er það helst eitthvað TENGT BÖRNUM OG KONUM SEM KÆMI SÉR BEST. ÞAÐ ERU NOKKRAR KONUR ÞARNA AÐ REYNA AÐ KOMA AF STAÐ LEIKSKÓLA FYRIR BÖRN. þÆR HAFA FENGIÐ HÚSNÆÐI, EN ALLT ANNAÐ VANTAR.

 

NÚ SENDI ÉG YKKUR ÞENNAN TÖLVUPÓST, MEÐ VON UM GÓÐ VIÐBRÖGÐ.

 

ÞIÐ SITJIÐ KANNSKI UPP MEÐ EITTHVAÐ Í GEYMSLUNUM OG/EÐA VITIÐ UM EITTHVAÐ SEM HÆGT VÆRI AÐ NÝTA. PAPPÍR, LITIR OG Þ.H. VÆRI LÍKA VEL ÞEGIÐ. SAUMAVÉLAR, ER ÞAÐ SEM KONURNAR DREYMIR HELST UM OG EITTHVAÐ HANNYRÐA TENGT.

 

ÁGÆTU VINIR, LÁTIÐ NÚ ÞESSI BOÐ GANGA ÁFRAM FYRIR MIG Í VIKUNNI OG SÖFNUM Í SKIPIÐ.

 

SKIPIÐ LIGGUR Í REYKJAVÍKURHÖFN, FYRIR ÞÁ SEM HAFA TÖK Á AÐ KOMA HLUTUM ÞANGAÐ.

 

EÐA HAFIÐ SAMBAND VIÐ MIG OG ÉG GET NÁLGAST HLUTI HJÁ YKKUR.

 

HAFIÐ SAMBAND, BESTU KVEÐJUR, MAJA KRISTJÁNS, SÍMI: 664-5845 OG HEIMASÍMI: 555-3487

 

Þórunn Hjartardóttir

 



» 3 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 00:20:00 / erlafreys

eimeríka

Já já já já já já ég veit.
Það er bara svo fjári mikið að gera....en ég skal hripa nokkrar línur hérna
fyrir ykkur núna.

Ég er semsagt komin frá Boston aftur....reyndar komin rúm vika síðan....en
sú ferð var alveg stór skemmtileg. Margt gerðist í þessari stuttu ferð s.s.
ég var rænd...þó ekki peningunum....nei nei bara fötum sem ég var nýbúin að
kaupa mér...heilar 7 flíkur...ég fattaði það ekki fyrr en ég var komin uppá
hótel aftur....hélt þá að ég hefði gleymt poka eða eitthvað og hringdi því í
búðina og var mér tjáð að ég yrði bara að koma aftur til þeirra því að væri
ekki hægt að svara mér í gegnum síma. Við Dísa systir tókum leigubíl til baka
og létum hann bara bíða á meðan við hlupum inn. Þar tók öryggisvörður á móti
okkur og ég sagði honum alla sólarsöguna og að ég héldi að ég hefði gleymt pokum
á kassanum....hann sagðist ætla að athuga þetta og þar með var hann horfinn.
Þegar hann loksinns birtist aftur sagðist hann hafa verið að skoða öryggisvélarnar
og þar séð að konan sem var á eftir mér á kassa hafi gert sér lítið fyrir tók
pokana mína...þessa tvo sem ég gleymdi...ég var auðvitað í áfalli og ekkert smá
reið yfir því að fólk væri svona ósvifið!! En kallgreyið sagði mér að vera róleg
og fara bara inn og ná mér í allt það sem vanntaði uppá hjá mér...sem ég gerði...
og ég fór með allt út án þess að borga svo mikið sem hálfan dollara fyrir!!
Ekki ónýt verslun það.

Brunakerfið fór líka af stað á hótelinu sem við vorum á aðfaranótt sunnudagsins
kl.4:00. Engin smá læti. Fólk var ekki alveg visst hvað það átti að gera og stóð
bara í hurðunum á herbergjunum sínum og horfði á hvort annað með stórt spurninga-
merki framan í sér. Ég var nú ekki alveg á þeim buxunum að bíða eftir því að eldurinn
kaæi til okkar og ákvað að fara framm í lobbí og spurja hvað væri í gangi....þar
stóð starfmaður sem sagði mér að öllu væri óhætt...það var einhver að poppa inni
á herbergi hjá sér og brent poppið svona illa að kerfið fór í gang. Það var hinns
vegar ekki hægt að slökkva á kerfinu fyrr en slökkviliðið kæmi og glumdi það því
í 20 mín samfleitt...og hvílíkur og annar eins hávaði. En þetta var bara ævintýri.

En ég er komin heim núna og hugsa núna ekki um neitt annað en afmælið mitt og hvernig ég eigi að hafa það. Ég er búin að ákveða þema, tvo brilla leiki og hvaða drykki ég ætla að bjóða uppá já og er búin að fá staðfestingu á að það séu 90% líkur á því að skemmtikrfturinn minn mæti....en ég á eftir að ákveða hvernig mat ég verð með og hverjum ég ætla að bjóða8|...en það hlítur að fara að skírast allt saman.8)
Hrikalega hlakkar mig mikið til að verða loksins 30 ára vvvíííííííííí.:haha:

Annað að frétta af mér....nei ekkert svosem....Steinunn er búin að vera lasin síðan
á miðvikudaginn...það er þessi bölvaða flensa og svo fékk hún líka eyrnabólgu.
Vona nú samt að við hin sleppum 7-9-13.

          .....Verð að fara að sofa....góða nótt....:$


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Félagasamtök
Fyrirtækið okkar